Hver stýrir ungverjalandi?
Á Ísland að hætta við að styðja Ungverjaland vegna hörmulegrar afstöðu stjórnvalda við hinsegin fólk? Kannski ekki.
RÚV birti áhugaverða úttekt á stöðu styrkveitinga EES-ríkjanna þriggja til Ungverjalands, nú í morgun. Þar er, eðlilega, fundið að því að Ungverjaland eigi að fá um 35 milljarða íslenskra króna úr Uppbyggingarsjóði ríkjanna á næstu þremur árum. Ástæða efasemdanna eru nýjustu vendingar á ungverska þinginu sem herða enn frekar að sýnileika og baráttu hinsegin fólks hér í landi.
Glæný lagasetning og stjórnarskrárbreyting Orbán stjórnarinnar kveða á um það að Pride gangan, sem gengin er síðla júní ár hvert í Búdapest, sé ólögleg og að þátttaka í henni geti varðað sektum. Andlitsgreiningartækni verður beitt til að sekta þátttakendur. Það er hins vegar mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að þessi nýja lagasetning er aðeins brotabrotabrot af þeim kröppu kjörum sem hinsegin fólki hefur hingað til verið boðið upp á hér.
Hjónaband samkynhneigðra er bannað, ungversk stjórnvöld viðurkenna ekki samkynja foreldri, erfðarétturinn er þar með enginn nema fólk geri erfðaskrá - og þá borgar sig ekki að eiga neina lögerfingja á lífi (systkini, foreldra, frændfólk).
Samkynja pör mega ekki ættleiða, stjúpættleiðingar eru bannaðar nema hjá gagnkynhneigðum pörum og konur í sambandi við aðrar konur mega ekki eignast börn með aðstoð tæknifrjóvgunar.
Við fjölskyldan þekkjum lesbískt par hér sem á tvær dásamlegar tvíburadætur. Önnur móðir þeirra er ekki viðurkennt foreldri í augum laganna og á þar með ekkert tilkall til dætranna, og þær ekki hennar. Í augum ríkisins er hún einstæð, barnlaus kona.
Og ekki láta mig byrja á réttindum trans fólks. Það væri stutt málsgrein því þau eru engin.
Svo ég vona að mér sé fyrirgefið þegar ég segi að nýjasta Pride bannið, sem setur enn frekari hömlur á tjáningarfrelsi Ungverja og réttinn til að koma saman, sé ekki alvarlegasta ógnin við frelsi og heilsu hinsegin fólks hér í landi.
Auðvitað eigum við ekki að styðja við ríki sem berja svona á sínum eigin borgurum og fyrirgefa rétti fólks til lifa við velsæld og virðingu.
En þá vandast málið.
Ég vil meina að það gáfulegasta sem evrópsk stjórnvöld geta gert núna, sé að sýna Ungverjum að Evrópa hafi ekki yfirgefið þau. (Auðvitað eru EES-ríkin aðeins annað en ESB en ég efast um að Ungverjar sjái það þannig - amk er það mín reynsla að allt opinbera kerfið lítur réttilega á Ísland sem fullgildan þátttakanda í sameiginlegum evrópskum kerfum og við njótum allra réttinda hér)
Og aftur, ég vona að mér sé fyrirgefin flækjan - en þetta er ekki einfalt mál.
Eins og rakið er í frétt RÚV er kominn fram raunverulegur keppinautur við Orbán sem heitir Magyar Petér. Sá fer fyrir Tizsa flokknum sem hann stofnaði þegar hann hafði verið sendur út á guð og gaddinn úr ungversku valdablokkinni fyrir óhlýðni. Er hann góður gaur? Ég veit það ekki - en hann hefur amk alla burði til að bjarga Ungverjalandi upp úr þessum forarpytti Evrópu andúðar og hómófóbíu.
Hér er nefnilega rekinn linnulaus áróður gegn Evrópusambandinu, Brussel og öllu sem tengist stofnunum sambandsins. Fidesz flokkurinn hringir a.m.k. vikulega í Frey til að sannfæra hann um að Evrópusambandið sé eitur og síðan við fluttum til Búdapest haustið 2023, hefur Fidesz ráðist í a.m.k. þrjár allsherjar herferðir til að sannfæra Ungverja um að óvinurinn lúri í Brussel.
Og við erum að tala um raunverulegt flóð auglýsinga. Hvert einasta krummaskuð í landinu er plasterað með auglýsingum reglulega um hættulega sérfræðingastóðið í ESB og óvini ríkisins. Oftast eru sett andlit á plaggötin sem Ungverjar hafa ekki hugmynd um hver eru - og það er effektívt. Þau hafa engar forsendur til að ætla að þetta sé ekki pakk sem vilji stjórna öllu í Ungverjalandi og höggva í þeirra veika lýðræðislega vald.
9. desember 2023
Þessi herferð skartaði Ursulu Von Der Leyen - sem er Cruella De Vil í huga Orbán stjórnarinnar, og Alex Soros, syni George Soros.
Slagorðið er á sama veg og öll hin: Ekki dansa eftir þeirra flautu
8. maí 2024
Þetta auglýsingaskilti hékk við enda götunnar okkar sl. vor. Þarna er frú Cruella aftur mætt fyrir miðju en henni á vinstri hönd er borgarstjóri Búdapest, Karácsony Gergely sem er vænsti náungi, og Magyar Péter er kominn fram lengst til hægri. Þetta var í aðdraganda Evrópuþingskosninganna og sveitarstjórnarkosninganna.
Slóganið: Þetta eru auðmjúkir þjónar Brussel
18. apríl 2025
Þessi skilti eru allsstaðar núna. Bókstaflega. Við fórum að örbæ við Balaton vatn í páskafríinu og sáum útfærslu af þessu skilti. Núna er, fyrir utan Cruelly og Selenskíj, mættur Manfred Weber sem er einhver þýskur náungi sem Ungverjar eiga að sjá sem ógn við sig. Af hverju? Enginn veit. Stutt google segir mér að gæjinn hafi upprunalega verið Ungverjum frekar vinveittur í Brussel.
Fyrirsögnin að þessu sinni: Leyfum þeim ekki að ráða yfir okkur.
Stjórnmálalandslagið hefur gjörbreyst síðan við fluttum hingað fyrir tæpum 2 árum og það er í sjálfu sér mjög spennandi. Nú er allt í einu raunverulegur möguleiki á að koma Orbán í burtu og hefja uppbyggingu í landinu. Kannanir eru að mæla Tizsa flokkinn stærri en Fidesz og það er í fyrsta sinn frá því Orbán tók völdin fyrir fimmtán árum síðan.
Og landið þarf sárlega á uppbyggingu að halda. Ekki í malbiki eða risaverkefnum á borð við Citadellu viðgerðina eða 800 milljón evra glæsiverkefnið í Liget garðinum.
Nei ungversk stjórnvöld hafa staðið í svo glæsilegri uppbyggingu og viðgerðum á hinum ýmsu mannvirkjum undanfarin ár að maður gapir hreinlega yfir glæsileikanum og skilur varla hvaðan peningarnir koma (nema jú reyndar). Búdapest er raunverulega fallegasta borg í heimi.
Á sama tíma eru launin ömurlega lág, bæði menntakerfið og heilbrigðiskerfið orðið algjörlega tvöfalt og það sem meira er: búið er að þurrausa allan opinberan stuðning við menningu, listir og umræðu sem ekki höfðar til and-intellectualistans í forsætisráðherrahöllinni.
Eitt lykilatriðið í styrk Uppbyggingarsjóðsins er nefnilega eyrnamerkt fé til félagasamtaka sem stjórnvöld fá ekki úthlutað sjálf. Það er verðug uppbygging árið 2025 þegar útlit er fyrir að Orbán geti tapað völdum í komandi kosningum á næsta ári. Félagasamtök sem styðja tjáningarfrelsið og mannréttindi gætu, með styrk frá Íslandi, Lichtenstein og Noregi, aukið þungann í baráttu sinni fyrir betra Ungverjalandi. Ég vil meina að það sé betri diplómasía en að sanna áróður Orbáns um að Evrópa vilji stanslaust refsa Ungverjum og beri alla ábyrgð á vansæld þeirra og örbirgð.
Rausnarlegur styrkur til samtaka hinsegin fólks í Ungverjalandi myndi nýtast gríðarlega vel í augnablikinu. Reynslan segir mér nefnilega að hinn almenni Ungverji sé ekki fordómafullur í garð hinsegin fólks, heldur einmitt víðsýnn og opinn fyrir fjölbreytileikanum. Ef þeirra málstaður fengi að heyrast hærra og betur á því ári sem nú fer í hönd, þá gæti réttarstaða hinsegin fólks stórbatnað fyrr en varir.
Sjáiði bara þetta!
Fylgi stjórnmálaflokkanna síðan við fjölskyldan fluttum til Búdapest. Eins og sjá má er sú stjórnarandstaða sem fyrir var ekki burðug.